Ariel Castro sem er ákærður fyrir að hafa haldið þremur ungum konum föngnum í um áratug mun lýsa yfir sakleysi þegar hann kemur fyrir dómara. Hann er ákærður fyrir að hafa nauðgað þeim og rænt í Cleveland Ohio.
Lögmaður Castro segir að skjólstæðingur sinn sé ekki skrímsli og ekki eigi að lýsa honum sem slíku í fjölmiðlum. Castro, sem er 52 ára, verður jafnvel ákærður fyrir að hafa myrt ófædd börn sem konurnar misstu á meðgöngu vegna barsmíða og harðræðis sem hann beitti þær á meðgöngu. Við slíkum brotum er hægt að fara fram á dauðarefsingu.
Michelle Knight, 32, Gina DeJesus, 23 og Amanda Berry, 27 ára, losnuðu úr prísundinni þann 6. maí eftir að nágranni heyrði Berry hrópa á hjálp.