Lögregla í Bretlandi rannsakar nú tilkynningar vegna meints rifrildis stjörnukokksins Nigellu Lawson og eiginmanns hennar Charles Saatchi. Myndir voru birtar af hjónunum þar sem þau sátu á veitingastað í tilefni af 70 ára afmæli Charles. Þar sést hann taka utan um háls Nigellu.
Hjónin yfirgáfu bæði heimili sitt í Chelsea-hverfinu í London í gærmorgun. Charles fór fyrstur og fylgdi Nigella í kjölfarið. Brunio, sautján ára sonur hennar úr fyrra hjónabandi, fylgdi henni. Hann hjálpaði móður sinni með farangurinn og fór síðan sjálfur út í bílinn.
Myndirnar af rifrildi hjónanna hafa vakið reiði um allan heim.
Sky News segir frá.