Barnsræningi skotinn til bana

Maðurinn tók barnið úr innkaupakörfu.
Maðurinn tók barnið úr innkaupakörfu. Skjáskot af Youtube

Upptaka af tilraun til barnsráns náðist á öryggismyndavél. Endaði gíslatakan, sem átti sér stað í verslunarmiðstöð í Oklahoma, með því að lögreglumaður skaut gíslatökumanninn til bana.

Lögreglan hefur birt myndbandið en á því sést maður taka tveggja ára stúlku úr innkaupakerru og halda hnífi að hálsi hennar. Móðir stúlkunnar grátbað manninn að sleppa barninu. Hún hringdi svo í neyðarlínuna og kom lögreglan fljótt á vettvang og rýmdi verslunina.

Eftir að hafa reynt að semja við manninn í um hálftíma sagði lögreglan hann hafa farið að tala um djöflatrú og byrjað að telja niður frá 60. Því hafi ekki verið annað þorandi en að skjóta manninn. Barnið slapp án meiðsla, segir í frétt Sky.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert