Svo virðist sem puttaferðalöngum fari sífellt fækkandi við vegi Evrópu. Mörg fyrirtæki bjóða nú farþegum upp á þjónustu þar sem þeir geta pantað far fyrir fram og þannig samnýtt ferð með fólksbíl. Mörgum finnst þessi kostur þægilegri og öruggari og því fækkar þeim stöðugt sem standa við vegina, með þumalfingurinn upp í loft, í von um að fá far.