Ótrúlegar myndir af flóðgáttum opnuðum

Hitabeltisstormurinn Trami hefur valdið miklum usla í Taívan og hefur þurft að aflýsa fjölda flugferða. Vegfarandi náði þessum myndum af því þegar flóðgáttir Shimen stíflunnar eru opnaðar. Vatnsflaumurinn er ótrúlegur.

Mikil úrkoma fylgdi storminum en vindhraðinn var víða um og yfir 30 metrar á sekúndu. Á einhverjum stöðum flæddi yfir vegi og aurskriður ollu eignatjóni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert