Atvinnuleysi á evrusvæðinu mældist 12,2% í september. 19,5 milljónir manna voru atvinnulausar í löndunum sautján.
Samkvæmt upplýsingum Eurostat hafa atvinnuleysistölur fyrir ágúst einnig verið uppfærðar. Í fyrstu kom fram að atvinnuleysi á evrusvæðinu hefði verið 12% í þeim mánuði en það reyndist 12,2%.