„Einum kafla er lokið en ekki sögunni allri. Nú get ég yfirgefið landið og haldið áfram því starfi að vernda Norðurheimskautssvæðið,“ sagði Dmitri Litvinov, aðgerðarsinni hjá Grænfriðungum. Hann er á meðal þeirra 28 Grænfriðunga sem veitt var sakaruppgjöf á dögunum.
Rússnesk yfirvöld hafa fallið frá ákærum á hendur 28 Grænfriðungum sem handteknir voru fyrir að mótmæla olíuvinnslu í Norður-Íshafi, og tveimur blaðamönnum sem fylgt höfðu hópnum. Grænfriðungarnir voru handteknir á olíuborpalli, og voru allir upprunalega ákærðir fyrir spellvirki.
Grænfriðungarnir fengu í dag brottfararleyfi og mega því yfirgefa Rússland. „Þetta var mjög ósanngjarnt allt saman. Og það er nauðsynlegt að fólk átti sig á því að við erum að gera góðverk. Við erum að reyna vernda Norðurheimsskautssvæðið,“ sagði Grænfriðungurinn Mannes Ubels.