Tveir nemendur í Delaware Valley Charter menntaskólanum í Fíladelfíu í Pennsylvaníuríki í Bandaríkjunum særðust þegar samnemandi þeirra hóf að skjóta á skólafélaga sína í dag.
Skotmaðurinn flúði af hólmi, en lögregla hafði upp á honum fljótlega. Ekki er vitað um ástæður árásarinnar.
Nemendurnir sem særðust eru ekki taldir alvarlega slasaðir.