Fimm ára drengur og amma hans sluppu án mikilla meiðsla er bíll fór yfir þau í Brasilíu.
Vilma Teodoro do Nascimento og barnabarn henar, Joao Pedro, urðu fyrir bíl eftir að á hann hafði verið ekið á krossgötum í borginni Goias.
„ég sá þá, þessa tvo bíla, lenda í árekstri. Ég reyndi að komast í burtu en það var ekki nægur tími. Þegar hvíti bíllinn ók yfir mig þá sá ég ekkert,“ hefur Sky-sjónvarpsstöðin eftir ömmunni.
Drengurinn telur það mikið kraftaverk að hann hafi sloppið lifandi. „Ég meiddi mig hér og hér og á eyranu,“ lýsti hann í sjónvarpsviðtali. „Þetta var kraftaverk frá guði.“
Hér að neðan má sjá myndband af slysinu.