Fjölskylda Dennis McGuire, sem tekinn var af lífi með banvænni sprautu í síðustu viku, hefur höfðað mál á hendur Ohio-ríki og lyfjafyrirtæki sem framleiðir lyfið. Þau segja að McGuire hafi orðið fórnarlamb „grimmilegrar og óeðlilegrar refsingar“ þar sem hann hafi engst um af sársauka í aftökunni sem tók næstum því hálfa klukkustund.
Aftakan fór fram 16. janúar. Sjónarvottar segja að McGuire hafi barist um og reynt að ná andanum í að minnsta kosti tíu mínútur eftir að lyfinu var sprautað í líkama hans. Nú í vikunni var annar fangi tekinn af lífi með sama lyfi í Oklahoma. Fyrsti fanginn sem tekinn var af lífi með þessari lyfjablöndu var Michael Lee Wilson snemma í janúar. Hann sagðist finna „allan líkama sinn brenna“ er lyfinu hafði verið sprautað í hann.
Nú er þess krafist í Ohio að frekari aftökum verði frestað þar til málið hafi verið skoðað ofan í kjölinn.
Í frétt USA Today segir að málsókn fjölskyldunnar beinist m.a. að fangelsismálayfirvöld og Hospira, lyfjafyrirtæki í Illinois-ríki sem framleiði lyfið sem notað var við aftökuna.
Lögmaður sem fer með málið segir að það snúist m.a. um brot á áttundu grein bandarísku stjórnarskrárinnar um grimmilega og óeðlilega refsingu.
„Að taka manneskju af lífi með blöndu lyfja sem hefur ekki verið prófað að fullu og getur valdið gríðarlegum sársauka í 25 mínútur telst grimmileg og óeðlileg refsins,“ segir m.a. í greinargerð fjölskyldunnar með kærunni. „Að drepa mann af þeirri vanvirðingu sem gert var, fyrir framan fjölskyldu hans og annarra sjónarvotta, jafnast á við grimmilega og óeðlilega refsingu.“
Í fréttaskýringu AP-fréttastofunnar um málið segir að aftakan hafi tekið 26 mínútur. Aftaka hafi ekki tekið jafnlangan tíma frá því að dauðarefsing var tekin upp að nýju í Ohio árið 1999.
Dennis McGuire var dæmdur til dauða árið 1989 fyrir að nauðga og myrða 22 ára gamla konu, Joy Stewart.
Sjá ítarlega frétt USA Today um málið hér.