71% Norðmanna vilja ekki í ESB

Norden.org

Mikill meirihluti Norðmanna er andsnúinn því að ganga í Evrópusambandið samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar fyrir norsku dagblöðin Nationen og Klassekampen sem birtar eru í dag. 71% Norðmanna vilja ekki ganga í sambandið samkvæmt könnuninni en 19% eru því hlynnt.

Ekki hafa orðið miklar breytingar á afstöðu Norðmanna frá því að hliðstæð skoðanakönnun var gerð í nóvember síðastliðnum samkvæmt frétt Nationen en þá voru 69,3% andsvíg aðild að ESB og 19,1% henni hlynnt.

Haft er eftir Heming Olausen, formanni samtakanna Nei til EU sem berjast gegn aðild að ESB, að það sé ánægjulegt að andstaðan sé stöðug í kringum 70% og að ríkisstjórnarskiptin í Noregi síðastliðið haust hafi ekki breytt afstöðu Norðmanna til málsins. Jan Erik Grindheim, formaður norsku Evrópusamtakanna, segir mikla andstöðu ekki koma á óvart í ljósi efnahagserfiðleikanna innan ESB. Hann vonist til þess að staðan breytist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert