Kular borinn til grafar

Mikaeel Kular.
Mikaeel Kular.

Mikaeel Kular, þriggja ára skoskur drengur sem fannst látinn í skóglendi nærri heimili sínu í janúar, hefur nú verið borinn til grafar. Móðir hans var ákærð fyrir morðið og hefur hún setið í fangelsi frá því í janúar. Útför Kular fór fram í gær, en móðir hans fékk að sjá lík hans daginn áður. Sky-sjónvarpsstöðin greindi frá þessu í dag. 

Móðirin sagði drenginn hafa horfið af heimili þeirra í Edinborg á miðvikudag og hófst mikil leit að honum. Hundruð manna tóku þátt í leitinni, m.a. fjöldi sjálfboðaliða. 

Frétt mbl.is: Móðirin ákærð fyrir morð. 

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert