Skutu 15 ára dreng til bana

Palestínumenn kastas steinum í átökum við ísraelska herinn á Vesturbakkanum …
Palestínumenn kastas steinum í átökum við ísraelska herinn á Vesturbakkanum á mánudag. AFP

Ísraelskir hermenn skutu í dag fimmtán ára palestínskan dreng til bana, samkvæmt upplýsingum frá heimildarmanni AFP-fréttastofunnar sem starfar á vegum palestínskra öryggissveita.

Heimildarmaðurinn segir að Yussef Sami Shawamreh, 15 ára, hafi verið felldur af ísraelska hernum á Vesturbakkanum, nálægt þorpinu Al-Ramadin. Hann segir að lík drengsins sé enn í vörslu ísraelska hersins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert