Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins Anders Fogh Rasmussen, varar Rússa við því að innrás inn í Úkraínu yrðu söguleg mistök. Hvetur hann rússnesk yfirvöld til þess að stíga til hliðar eftir að fylgjendur Rússlands náðu yfirráðum yfir nokkrum opinberum byggingum í austurhluta Úkraínu.
Rasmussen biður rússnesk stjórnvöld um að magna ekki upp ástandið í austurhluta Úkraínu en fjölmennt herlið Rússa er skammt frá landamærum Úkraínu í austri.
Hann segir að ef Rússar ætli sér frekari inngrip í Úkraínu þá yrðu það söguleg mistök. Það myndi hafa alvarleg áhrif á samband NATO við Rússland og það myndi einangra Rússa enn frekar á alþjóðavettvangi.