Glaðasólskin var í Sydney í dag er Katrín hertogaynja og Vilhjálmur Bretaprins hófu opinbera heimsókn sína í Ástralíu. Fjölmenni tók á móti parinu en með í för er litli prinsinn, Georg.
Fjölskyldan var í tíu daga í Nýja-Sjálandi og tók sér ýmislegt þar fyrir hendur. Nú er hins vegar komið að því að ferðast um Ástralíu.
Vilhjálmur kom síðast til Ástralíu með foreldrum sínum, Díönu og Karli, á níunda áratugnum.