Fimmtán ára sómalískur drengur sem faldi sig í hjólabúnaði flugvélar og lifði af sex tíma flugferð frá Kaliforníu til Hawaii, var að leita að mömmu sinni. Hann dvelur ekki lengur á Hawaii en ekki er gefið upp hvert hann hefur verið fluttur.
Drengurinn var í umsjá barnaverndaryfirvalda eftir að hann fannst ráfandi um flugvöllinn. Með ólíkindum þykir að hann hafi lifað flugið af en í háloftunum getur verið yfir 60 gráðu frost og loftið súrefnislítið. Talið er að drengurinn hafi verið meðvitundarlaus mest alla ferðina.
Drengurinn var fluttur á sjúkrahús á Hawaii. Hann sagði lögreglunni að hann hefði viljað komast til Afríku til móður sinnar.
Móðir hans, Ubah Mohamed Abdulle, sagði í útvarpsviðtali að hún hefði flúið frá Sómalíu og væri í flóttamannabúðum í Eþíópíu. Hún sagðist vera skilin við eiginmanninn sem byggi í Santa Clara í Kaliforníu ásamt tveir sonum þeirra.
„Þeim var sagt að ég væri dáin en þau komust nýlega að því að ég væri á lífi,“ sagði hún í viðtalinu.
Faðir drengsins kom til Honolulu á Hawaii um viku eftir að sonurinn fannst á flugvellinum. Ekki hefur verið uppgefið hvort að þeir feðgar yfirgáfu ríkið saman.
Fréttir mbl.is:
Flugferð í frosti og súrefnisleysi
Faldi sig í hjólabúnaði og lifði af