Jóhann Karl Spánarkonungur hefur ákveðið að láta af völdum, að sögn forsætisráðherra Spánar sem tilkynnti þessa ákvörðun konungs rétt í þessu.
Það er sonur hans, Felipe krónprins, sem tekur við konungstigninni, að sögn Marianos Rajoys forsætisráðherra.
Í janúar var birt skoðanakönnun þar sem kom fram að yfir 60% Spánverja vildu að Spánarkonungur segði af sér og rétt tæplega helmingur sagðist styðja konungsveldið.
66% sögðust jákvæð í garð krónprinsins, Felipes, og 56% sögðust hafa trú á því að hann gæti bætt ímynd konungsfjölskyldunnar, sem þykir hafa beðið hnekki, m.a. vegna kostnaðarsamrar veiðiferðar sem Juan Carlos fór til Bótsvana árið 2012, á sama tíma og efnahagur Spánar var í rúst. Konungurinn hefur átt við veikindi að stríða undanfarin ár.
Jóhanni Karli Spánarkonungi, sem orðinn er 76 ára gamall, hefur verið eignaður heiðurinn af því að stýra Spáni á braut lýðræðis eftir dauða einræðisherrans Franciscos Francos árið 1975. Það er meginástæðan fyrir því að Spánverjar hafa fylkt liði að baki konunginum og varið hann fyrir gagnrýni. Hann hefur notið stuðnings fjölmiðla, stjórnmálamanna, stéttarfélaga og kirkjunnar. Haft hefur verið á orði að meira að segja þeir, sem litu á hann sem dýrasta atvinnuleysingja landsins, hafi haldið aftur af sér.