Abdel Fattah al-Sisi, fyrrverandi yfirmaður egypska hersins, er nýr forseti Egyptalands en í dag var tilkynnt að hann hefði farið með afgerandi sigur af hólmi í forsetakosningunum sem fram fóru í síðustu viku með 96,9 prósent atkvæða.
Sisi hafði verið spáð sigri þar sem hann nýtur mikilla vinsælda eftir að hafa átt stóran þátt í því að steypa Mohamed Morsi úr forsetastólnum í júlí í fyrra.
Mótframbjóðandi Sisi, Hamdeen Sabbahi hlaut aðeins um þrjú prósent atkvæða. Sabbahi kvartaði yfir kosningunum á meðan þeim stóð þar sem þær áttu upphaflega aðeins að standa yfir í tvo daga. Yfirkjörstjórnin ákvað hins vegar að bæta einum degi við vegna slakrar kosningaþátttöku. Sabbahi gaf í skyn að Sisi sjálfur hefði haft hönd í bagga með að taka þessa ákvörðun en yfirkjörstjórnin vísaði því hins vegar á bug.
Stuðningsmenn Morsis í Bræðralagi múslima sniðgengu kosningarnar en samtökin hafa verið yfirlýst sem hryðjuverkasamtök og hefur ríkisstjórnin bannað alla starfsemi félagsins.
Kjörsóknin í kosningunum var heldur dræm eða einungis 47,45 prósent.
Sisi hefur sagt að það muni taka um 25 ár að innleiða raunverulegt lýðræði í Egyptalandi. Þá hefur hann talað gegn auknum réttindum almennra borgara sem hann telur vera til þess fallin að skapa óeirðir.
Talið er að hann verði formlega settur í embætti fyrir Hæstarétti Egyptalands á sunnudaginn næstkomandi.