Grunsemdir hafa vaknað enn á ný um flugstjóra malasísku flugvélarinnar sem hvarf þann 8. mars fyrr á árinu. Rannsókn á flughermi kafteins Zaharie Shah, sem flaug vélinni þann örlagaríka dag, hefur leitt í ljós að Shah hafði flogið sömu flugleið í hermi sínum og flug MH370 var á daginn sem hún hvarf yfir Indlandshafi. Breska dagblaðið Telegraph segir frá þessu.
Upplýsingum um flugið í herminum var eytt úr tölvu flugstjórans áður en vélin hvarf en hann hafði meðal annars æft lendingar á stuttri flugbraut á eyju í Indlandshafinu í herminum. Þetta hefur rannsóknin meðal annars leitt í ljós.
Leitarflokkar haga nú leitinni eftir niðurstöðum rannsóknarinnar sem hefur ýtt undir þær grunsemdir að flugstjórinn hafi í raun rænt eigin vél.
Rannsóknarlögreglumenn og aðrir sérfræðingar hafa í tengslum við rannsókn málsins ekki fundið neinar vísbendingar um að hvarfið megi rekja til tæknilegra örðugleika. Það styður einnig þær kenningar um að vélinni hafi verið rænt.
Sjá einnig:
„Elskar lífið og elskar að fljúga“
Rannsaka flughermi flugstjórans