Heilbrigðiskerfið að hruni komið?

Frá Líbýu.
Frá Líbýu. AFP

Ótt­ast er að heil­brigðis­kerfi Líb­ýu geti hrunið, fari svo að fjöldi Fil­ipps­ey­inga og Ind­verja sem starfa á sjúkra­hús­um í land­inu hverfi til heimalanda sinna.

Blóðug átök hafa geisað í land­inu síðustu þrjár vik­ur og hafa nokk­ur lönd flutt sendi­herra og rík­is­borg­ara sína úr land­inu. 60% þeirra sem starfa á sjúkra­hús­um í Líb­ýu eru frá Fil­ipps­eyj­um og 20% frá Indlandi.

Fjöl­marg­ir dvelja nú á sjúkra­hús­um í Líb­ýu eft­ir átök síðustu vikna. Að minnsta kosti 102 hafa fallið í höfuðborg lands­ins, Trípolí og 452 slasast í átök­un­um sem hóf­ust þann 13. júlí sl.

Yf­ir­völd á Fil­ipps­eyj­um hvöttu rík­is­borg­ara lands­ins til að yf­ir­gefa Líb­ýu þann 20. júlí sl. eft­ir að vinnumaður frá Fil­ipps­eyj­um fannst af­höfðaður. Aðeins um 700 af 13 þúsund Fil­ipps­ey­ing­um í land­inu tóku mark á þessu og yf­ir­gáfu landið. 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert