Semja ekki meðan árásir halda áfram

Benjamin Netanyahu.
Benjamin Netanyahu. AFP

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, segir ekki koma til greina að Ísraelar semji um frið við Hamas-samtökin meðan samtökin halda áfram að skjóta eldflaugum á landið.

Fyrr í morgun var greint frá því að Hamas-samtökin væru efins um að friðarviðræður bæru árangur. Átökin á Gaza héldu áfram í dag. Drengur á unglingsaldri lét lífið í árás Ísraelshers á Gaza í morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert