Liðsmenn úr röðum vígasveita Ríkis íslams, samtaka íslamista sem hafa stofnað kalífadæmi á yfirráðasvæðum sínum í Norður-Írak og Sýrlandi, myrtu að minnsta kosti áttatíu jasída í þorpinu Kocho, tiltölulega skammt frá Sinjar-fjalli í nótt. Íslamistarnir hafa ofsótt og hótað að lífláta jasída snúist þeir ekki til íslamskrar trúar.
Liðsmenn vígasveitanna komu til þorpsins fyrir fáeinum dögum og hótuðu strax öllu illu, að sögn talsmanna Kúrda. Þeir gáfu bæjarbúum aðeins nokkurra daga frest til að snúa til íslamskrar trúar. Sá frestur rann út í gærkvöldi.
Embættismenn Sameinuðu þjóðanna áætla að yfir 1,2 milljónir Íraka hafi flúið heimili sín vegna ófriðarins sem ríkir í landinu. Þeir hafa lýst yfir þriðja og hæsta stigi viðbúnaðar vegna neyðarástandsins, sama viðbúnaðarstigi og nú er í gildi í Sýrlandi, Suður-Súdan og Mið-Afríkulýðveldinu.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær einróma ályktun sem ætlað er að draga þrótt úr liðsmönnum íslamista í Írak og Sýrlandi. Markmiðið með henni er að stöðva fjármagnsstreymi til þeirra og liðssöfnun þeirra erlendis.