Ísraelsher tilkynnti í dag að búið væri að sprengja upp heimili tveggja manna sem grunaðir eru um að hafa rænt og myrt þrjá ísraelska unglingsdrengi í júní.
Þeir Naftali Frenkel, Gilad Shaer og Eyal Yifrach hurfu á Vesturbakkanum 12. júní. Lík þeirra fundust 30. júní og hafa ísraelsk stjórnvöld kennt Hamas-samtökunum um morðin.
Hvarf og morð drengjanna ýttu undir atburðina sem leiddu til átakanna á Gaza undanfarnar vikur þar sem um 2000 manns hafa látið lífið.
Að sögn Ísraelsmanna voru þrír Palestínumenn á bakvið morðin. Þeir búa allir í borginni Hebron. Einn þeirra, Hossam Qawashmeh, var handtekinn í júlí en hinir tveir, Marwan Qawashmeh og Amer Abu Eisha, eru enn lausir.
„Í nótt eyðilögðu öryggissveitir – sem hluti af aðgerðum til þess að berjast við hryðjuverk á svæðinuh – hús þeirra Hossams Qawasmeh og Amers Abu Eisha. Jafnframt er búið að girða af heimili Marwans Qawasmeh,“ sagði í yfirlýsingu frá hernum.
Ísraelskir embættismenn halda því fram að mennirnir þrír séu Hamas-liðar og að Hossam Qawasmeh sé leiðtogi hópsins. Talsmaður hersins, Peter Lerner, sagði í samtali við AFP að mannránið hafi verið skipulagt af Hossam, sem væri háttsettur Hamas-liði. Á hann að hafa sent hina tvo til þess að fremja ódæðið.