Ísraelsher hóf loftárásir á Gaza að nýju í dag. Forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, fyrirskipaði loftárásirnar eftir að þremur eldflaugum var skotið frá Palestínu yfir til Suður-Ísraels.
Jafnframt hafa stjórnvöld í Ísrael fyrirskipað samninganefnd sinni að yfirgefa Kaíró í Egyptalandi. Þar hafa viðræður um áframhaldandi vopnahlé staðið yfir síðustu daga. Í gærkvöldi tókst samninganefndunum að framlengja vopnahléið um einn sólarhring og átti það að renna út á miðnætti.
Vitni í Palestínu segja að loftárásum Ísraelsmanna hafi verið beint að opnum svæðum nálægt borgunum Beit Lahiya á Norður-Gaza, Maghazi og Khan Yunis og Rafha á Suður-Gaza.
Ekki hefur verið tilkynnt um slys á fólki eða skemmdir, hvorki í Ísrael eða Palestínu. Enginn hefur þó lýst yfir ábyrgð á eldflaugaárásunum frá Palestínu.
Utanríkisráðuneyti Ísraels hefur lýst því yfir að eldflaugaárásirnar frá Palestínu hafi verið brot á vopnahléinu.
Ísraelsher hefur jafnframt tilkynnt að hann væri nú að beina árásum sínum að „hryðjuverkasvæðum á Gaza“ í kjölfar eldflaugaárásana.
„Enn á ný hafa hryðjuverkamenn rofið vopnahlé og hafið árásir á ísraelska borgara,“ sagði talsmaður Ísraelshers, Peter Lerner, í tilkynningu.
Talsmaður Hamas, Sami Abu Zuhri, hefur ásakað Ísrael um að eyðileggja viðræðurnar í Kaíró síðustu daga. „Við höfum engar upplýsingar um eldflaugaárásir frá Gaza. Árásir Ísraelshers í dag eru þó augljóslega hannaðar til þess að stöðva viðræðunnar í Kaíró,“ sagði hann í samtali við AFP.