Réttarhöld yfir þýskum lögreglumanni, sem sakaður er um að hafa myrt mann sem hann kynntist á vef sem fólk með mannátsblæti sækir í meðal annars með óra um að gera klámfengin myndbönd tengdu mannáti, hófust í dag.
Málið hefur vakið gríðarlega athygli en að sögn saksóknara myrti Detlev Günzel, 56 ára, mann á heimili sínu í nóvember í fyrra. Hann skar síðan líkið niður í litla bita og gróf þá í garðinum. Morðið var með vilja og vitund fórnarlambsins.
„Hann myrti og sundurlimaði hann til þess að örvast kynferðislega og síðar fékk hann kynferðislega útrás við að horfa á myndskeiðið sem hann bjó til,“ sagði saksóknari í héraðsdómi í Dresden í dag.
Günzel á yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsisdóm hann verður fundinn sekur um morð og að hafa raskað ró hins látna.
Mennirnir kynntust í október í fyrra á vef þar sem slátrun og mannátsórar eru mjög áberandi. Yfir þrjú þúsund manns eru í áskrift á vefnum sem þykir sá besti í þessum fræðum. Með því að semlla á umræðubox geta áskrifendur gefið sig fram vilji þeir taka þátt í órum sem fari langt fram úr þeirra draumum.
Í fyrstu var talið að lögreglumaðurinn hafi borðað hluta líksins en ekkert hefur fundist sem bendir til þess. Günzel hefur dregið játningu sína til baka en hann játaði í nóvember að hafa myrt fórnarlambið, 59 ára Pólvera, Wojciech Stempniewicz, með því að skera hann á háls.
Verjendur Günzels halda því fram að Stempniewicz hafi hengt sig í sérútbúnu pyntingarherbergi Günzels í kjallara á heimili lögreglumannsins. Í kjölfarið hafi Günzel hlutað líkið í sundur með hníf og rafmagnssög.
Við réttarhöldin í morgun fór Günzel yfir ævisögu sína og sagðist hafa alist upp á fallegu heimili ásamt foreldrum sínum. Hann hafi búið við gott atlæði í barnæsku og verið dekraður af öllum í fjölskyldunni. Günzel hafði verið kvæntur öðrum samkynhneigðum manni í tíu ár en þeir skildu fyrr á árinu. Hann á tvö börn af fyrra hjónabandi og ættleiddi dóttur fyrrum eiginmanns sín. Hann segist vera í góðu sambandi við fyrrverandi maka sína og börn og þau hafi öll heimsótt hann í fangelsið. Það hefur komið öllum á óvart það tvöfalda líf sem lögreglumaðurinn lifði, samkvæmt frétt AFP.
Í myndskeiði sem hann gerði og sýnt verður við réttarhöldin á að vera ansi gróteskt en það er 50 mínútur að lengd. Talið er að réttarhöldin standi yfir fram í nóvember og hafa um tuttugu vitni verið kölluð til, þar á meðal ekkja fórnarlambsins.
Stempniewicz, fjármálaráðgjafi sem bjó í Hanover, og Günzel höfðu verið í sambandi í gegnum tölvupósta, smáskilaboð og símtöl í nokkurn tíma áður en þeir hittust þann 4. nóvember. Günzel sótti hann á lestarstöð í Dresden og fóru þeir saman í hús sem hann átti í fjallabæ í Hartmannsdorf-Reichenau og endaði Stempniewicz ævi sína þar.
Þekkt mannætumál kom upp árið 2001 í Þýskalandi er mannætan Armin Meiwes játaði að hafa myrt, limlest og borðað lík elskuga sem hann hafði kynnst á netinu þegar hann auglýsti eftir fórnarlambi. Hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi árið 2006. Við rannsókn á því máli komu upp á yfirborðið alls konar vefsíður þar sem fólk með mannætublæti bauð sig fram sem fórnarlömb við slíkt.