Eldflaug var skotið frá Líbanon til Ísraels í kvöld, samkvæmt upplýsingum Ísraelshers. Í dag eru 47 dagar liðnir frá því að Ísraelsher hóf sókn gegn Hamas-samtökunum af hörku á Gazasvæðinu.
„Eldflaug frá Líbanon lenti í Akko í Ísrael rétt í þessu,“ segir í tilkynningu ísraelska hersins kl. 19.45.
Enn hafa engar fréttir af mannfalli eða skemmdum borist.