Hátt settir palestínskir embættismenn segja að samkomulag hafi náðst milli ísraelskra stjórnvalda og Hamas-hreyfingarinnar á Gaza um vopnahlé. Egyptar komu að því að miðla málum og fram kemur á vef BBC að um langtímasamkomulag sé að ræða.
Moussa Abu Marzouk, aðalsamningamaður Hamas, segir að samkomulagið muni binda enda á átökin sem hafa staðið yfir í sjö vikur, en yfir 2.200 hafa látist. Marzouk segir að fljótlega verði tilkynnt um samkomulagið með formlegum hætti.
Palestínumenn segja að Ísraelar hafi samþykkt að draga úr lokunum á Gaza og byrja að hleypa hjálpargögnum og byggingarefni inn á svæðið.
Ekki hafa borist viðbrögð frá ísraelskum stjórnvöldum.