Lögregla í bandarísku borginni Baytown í Texasríki var á mánudagskvöld kölluð út að hótelinu Palace Inn þar í borg eftir að starfsfólk heyrði karlmann ítrekað kalla eftir aðstoð. Þegar lögregla kom á vettvang fylgdi hún ópum mannsins að herbergi einu. Þar voru fyrir Charles James og fjórtán ára dóttir hans.
Stúlkan skýrði lögreglumönnum frá því að þau feðginin hefðu verið að neyta vímuefna í mestu ró þegar faðir hennar hreinlega fór yfir um og hóf að öskra út í eitt. James, sem er 36 ára, var undir miklum áhrifum efnanna og þvoglumæltur gat hann ekki svarað spurningum lögreglumannanna.
James var handtekinn og fluttur í fangaklefa. Hann verður ákærður fyrir fíkniefnabrot og fyrir að stofna lífi barns í hættu. Dóttir hans var færð í hendur ættingja.