Fjölmargir voru viðstaddir minningarathafnir í New York, í Washinton og í Pennsylvaníu í dag til að minnast þeirra sem féllu í hryðjuverkaárásunum þennan dag fyrir þrettán árum.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, flutti erindi í Pentagon en athöfnin var aðeins opin fyrir ættingja þeirra sem létu lífið í við höfuðstöðvar Varnarmálastofnunarinnar.
Um 3.000 manns létust hinn 11. september 2001 þann þegar flugræningjar í hryðjuverkasamtökunum al-Qaeda stýrðu farþegaflugvélum á tvíburaturnana í New York og Pentagon, byggingu varnarmálaráðuneytisins, auk einnar vélar sem hrapaði á engi í Shanksville í Pennsylvaníu.
Tom Monahan kom til minningarathafnarinnar í New York og minntist bróðurins síns og frænda sem létu lífið í árásunum. „Allt er í góðu lagi þar til þú kemur hingað,“ sagði hann og veifaði höndunum til að gefa merki um að hann gæti ekki talað meira.
Eflaust veigra sér einhverjir við að fljúga þennan dag, 11. september, minnugir hörmunganna. Aðspurður segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, að fyrirtækið finni þó ekki fyrir mun á fjölda farþega þennan dag og aðra í september. Sama hafi einnig gilt undanfarin ár.