Lögreglumaður skotinn til bana

AFP

Lögreglumaður lét lífið í morgun og annar særðist eftir að skotárás var gerð á lögreglustöð í bænum Blooming Grove í norðausturhluta Pennsylvaníu-ríkis í Bandaríkjunum.

Fram kemur í frétt AFP að ekki sé vitað hvert tilefni skotárásarinnar var og enginn hafi verið handtekinn vegna hennar. Mikill viðbúnaður er á staðnum af hálfu lögreglu og umfangsmikil leit er hafin að árásarmanninum. Fjölmörgum götum í nágrenni lögreglustöðvarinnar hefur verið lokað samkvæmt bandarískum fjölmiðlum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert