Kosningum til sænska þingsins lauk klukkan 18:00 að íslenskum tíma og benda útgönguspár til þess að vinstriflokkarnir hafi haft sigur í þeim auk Svíþjóðardemókrata sem boða einkum harða stefnu í innflytjendamálum.
Fram kemur í frétt AFP að vinstriflokkarnir undir forystu jafnaðarmanna hafi fengið 44,8% fylgi samanlagt samkvæmt útgönguspá sænska ríkisútvarpsins. Svíþjóðardemókratar hafi hins vegar fengið 10,5% sem er aukning upp á 5,7% frá síðustu kosningum. Ríkisstjórn Fredriks Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar og leiðtoga Hægriflokksins, sem stýrt hefur Svíþjóð undanfarin átta ár er samkvæmt því á útleið en samtals fær fylking miðju- og hægriflokka 39,7% samkvæmt spánni.
Verði niðurstaðan með þessum hætti verður næsti forsætisráðherra Svíþjóðar væntanlega Stefan Löfven, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins. Reinfeldt hefur verið hrósað mjög fyrir að hafa stýrt Svíum farsællega í gegnum efnahagskrísuna í heiminum en stjórnmálaskýrendur telja að verði ríkisstjórn hans hafnað sé það fyrst og fremst vegna þess að kjósendur telji tímabært að breyta til eftir átta ára valdatíma ríkisstjórnarinnar.