Alex Salmond, forsætisráðherra Skotlands, segir að þeir sem höfnuðu sjálfstæði Skotlands í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fór fram í vikunni hafi verið blekktir með síðbúnum loforðum um meiri völd.
Salmond tilkynnti á föstudaginn að hann hyggðist segja af sér sem forsætisráðherra í kjölfar niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands sem fór fram í gær. 55,42% Skota vildu ekki að landið yrði sjálfstætt ríki. Hann hyggst einnig segja af sér sem leiðtogi Skoska þjóðarflokksins.