Bill Cosby hvetur bandaríska fjölmiðla til að vera hlutlausir í umfjöllun um meint kynferðislegt ofbeldi hans gegn fjölda kvenna. Hingað til hefur hann lítið sem ekkert tjáð sig um ásakanirnar.
Cosby, sem í gegnum tíðina hefur verið elskaður og dáður af milljónum Bandaríkjamanna, þakkar eiginkonu sinni til fimmtíu ára stuðninginn. „Ást og styrkur kvenþjóðarinnar,“ sagði hann í samtali við The Post. „Leyfðu mér að segja það aftur, ást og styrkur kvenþjóðarinnar.“
Margar kvennanna halda því fram að Cosby hafi byrlað þeim ólyfjan og nauðgað þeim.