Tólf farþegar slösuðust þegar flugvél frá American Airlines lenti í mikilli ókyrrð í loft þegar hún var á leið frá Seoul í S-Kóreu til Dallas í Texas. Myndskeið sem farþegar tóku sýnir þá skelfingu sem greip um sig um borð.
Flugvélin séri við og lenti í Japan eftir óhappið. Fjórir farþegar og einn úr áhöfninni voru fluttir slasaðir á spítala, en sjö aðrir kvörtuðu undan eymslum.
Ókyrrðin stóð yfir í um 45 mínútur. Mikill ótti greip um sig meðal farþega.