Vopnaður ræningi hefur tekið tvo í gíslingu í skartgripaverslun í borg í suðurhluta Frakklands. AFP-fréttaveitan greinir frá.
Ekki er vitað hvort málið tengist gíslatökunum tveimur í dag.
Uppfært kl. 18.52
Telegraph greinir frá því að skartgripaverslunin sé í borginni Montpellier í Frakklandi. Svo virðist sem ræninginn hafi læst sig inni í versluninni og bíður lögregla átekta utandyra.
Í frétt APF segir að engin tengsl séu á milli gíslatökunnar í Montpellier og gíslatakanna í París og í Dammartin-en-Goële í dag. „Þetta var rán, þetta hefur ekkert að gera með atburðina í París,“ sagði saksóknarinn Christophe Barret í samtali við AFP.
Uppfært kl. 20.30
Lögregla hefur lokað af stórt svæði við verslunina. Svo virðist sem ræninginn sé enn inni í byggingunni ásamt gíslunum.
Fréttin verður uppfærð.