Franska dagblaðinu Charlie Hebdo var mótmælt áfram í Pakistan í dag er þúsundir manna í næstum því öllum stærri borgum landsins hópuðust saman á fjöldafundum. Skopmynd af Múhameð spámanni, sem birtist á forsíðu nýjustu útgáfu dagblaðsins hefur vakið mikla reiði meðal fjölmargra múslíma, m.a. í Filippseyjum og Líbanon.
Mótmæli voru haldin í pakistönsku borgunum Lahore, Karachi, Islamabad, Quetta, Peshawar og Multan. Þar mátti sjá brenndar styttur af forseta Frakklands, Francois Hollande og af teiknurum blaðsins. Jafnframt var kveikt í fána Frakklands á mörgum stöðum.
Rúmlega tvö þúsund manns tóku þátt í mótmælagöngu í Karachi. Hópur kristinna presta tóku jafnframt þátt til þess að sýna samstöðu með múslímum.
Nefnd, skipuð af þingmönnum, heimsótti ræðismann Frakka í Karachi til þess að afhenda ályktun þess efnis að útgáfa Charlie Hebdo yrði bönnuð „fyrir að dreifa trúarlegu hatri í heiminum,“ sagði talsmaður Tehreek-e-Insaf flokksins.
Í borginni Quetta stöppuðu mótmælendur á franska fánanum áður en þeir kveiktu í honum, ásamt myndum og styttum af Hollande. Í Peshawar tóku rúmlega hundrað kristnir þátt í mótmælunum og söngluðu slagorð gegn dagblaðinu og brenndu franska fánann.
Mótmælendur í borginni Multan hrópuðu „Við erum ekki Charlie, við erum Kouachi“ og sýndu með því Kouachi bræðrunum stuðning, en þeir myrtu tólf manns á skrifstofu Charlie Hebdo í París 7. janúar. Bræðurnir létust sama dag í átökum við lögreglu.
Á föstudaginn slösuðust að minnsta kosti þrír, þar á meðal ljósmyndari AFP fréttaveitunnar, í átökum á milli mótmælendum og lögreglu við ræðisskrifstofu Frakklands í Karachi.