Fjármálaráðherra Grikklands, Yanis Varoufakis, vill að samkomulag á milli grískra stjórnvalda og alþjóðlegra lánveitenda landsins liggi fyrir í lok maí. Fram að þeim tíma myndi Grikkland ekki óska eftir frekari lánafyrirgreiðslum. Þetta sagði ráðherrann við fréttamenn í París.
Varoufakis vinnur að því þessa dagana að afla stuðnings innan Evrópusambandsins við kröfur Grikkja um að stór hluti skulda þeirra verði afskrifaður. Þýskir ráðamenn hafa þegar hafnað því. Ráðherrann hyggst á næstunni ferðast meðal annars til Berlínar og Frankfurt í Þýskalandi en höfuðstöðvar Evrópska seðlabankans er að finna í síðarnefndu borginni.
„Það er mikilvægt að við hittumst,“ er haft eftir Varoufakis í frétt AFP varðandi mögulegan fund með Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands. Fram kemur að þýska fjármálaráðuneytið hafi hins vegar ekki formlega fengið ósk um slíkan fund frá grískum stjórnvöldum.