Bandaríska fréttamanninum Brian Williams hefur verið vikið frá störfum í sex mánuði og fær hann ekki laun á tímabilinu fyrir að hafa logið til um atburði í Írak. Í tilkynningu sem NBC sjónvarpsstöðin sendi frá sér í gærkvöldi kemur fram að ástæða brottvikningarinnar séu óafsakanlegar aðgerðir hans.
Williams, sem er einn vinsælasti fréttaþulurinn vestanhafs, hefur ítrekað rætt um það þegar hann varð fyrir árás í Írak. Williams sagðist hafa verið í þyrlu sem var skotin niður í Írak en hermenn efuðust um frásögn hans. Williams segir í afsökunarbeiðni sem hann sendi frá sér í síðustu viku að minnið hafi brugðist sér.
Þulurinn sem laug víkur úr starfi