Fyrir sex árum var sjö ára dóttur Dienu Thompson rænt, nauðgað og hún myrt þegar hún var á leið heim úr skólanum. Á fimmtudaginn sl. tók Thompson sig til og kveikti í húsi morðingjans, Jarreds Harrells.
Harrell var dæmdur í lífstíðarfangelsi árið 2012, en húsið hefur staðið autt síðan. Somer Thompson-sjóðnum, sem stofnaður var í minningu dóttur Dienu, var gefið húsið eftir að bankinn yfirtók það og ákvað Diena að gera það að æfingasvæði fyrir slökkviliðið.
Á fimmtudaginn fór hún með liði slökkviliðsmanna og brenndi húsið niður með þeirra hjálp.
„Það er mjög gott að vita að ég þarf ekki að keyra þessa götu aftur og sjá þetta ógeðslega hús,“ sagði Thompson í samtali við The Florida Times-Union, en dóttir hennar var myrt inni í húsinu.
„Burn, baby, burn,“ sagði hún þegar hún fylgdist með húsinu brenna. Ekki hefur verið ákveðið hvað verður gert við lóðina.