Móðir í Arizona í Bandaríkjunum biður þann eða þá sem brutust inn á heimili hennar og stálu meðal annars fartölvu, sjónvarpi og ösku sonar hennar að skila jarðneskum leifum hans. Drengurinn lést fyrir átta árum.
Aska Matthew Isaiah Hernandez var geymd í poka í boxi úr silfri. Pokinn var tekinn en boxið var skilið eftir og segist móðir drengsins ekki skilja hvað þjófurinn var að hugsa þegar hann tók öskuna.
Konan lét brenna lík sonar síns en hafði ekki efni á að láta grafa hann og því var askan enn á heimili hennar. „Barnið mitt er þarna einhversstaðar,“ sagði hún í samtali við fjölmiðla og vonar að einhver sjái að sér og skilji öskuna eftir við heimili hennar.