Mótmælendur hröktu Nigel Farage, leiðtoga Breska sjálfstæðisflokksins (UKIP), og fjölskyldu hans út af krá í Kent á Englandi í dag þar sem þau sátu að snæðingi.
Fram kemur á fréttavef Daily Telegraph að Farage hafi kallað mótmælendurna óþjóðalýð en þeir réðust meðal annars að bifreið Farage þegar hann ók á brott ásamt eiginkonu sinni. Stukku meðal annars á vélarhlíf bifreiðarinnar.
Haft er eftir Farage að fjölskyldan hafi tvístrast í látunum og að tvær dætur þeirra, 15 ára og 10 ára, sem verið hafi með þeim, hafi orðið mjög hræddar og flúið á brott. Þær hafi ekki enn komið í leitirnar. Farage gagnrýnir mótmælendur harðlega fyrir að beita ofbeldi til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. „Ég vona að þessi óþjóðalýður sé stoltur af sjálfum sér.“
Mótmælendurnir mættu á staðinn eftir að mynd hafði verið tekin af Farage á staðnum og birt á netinu. Haft var eftir skipuleggjanda mótmælanna, Dan Glass, að Breski sjálfstæðisflokkurinn væri loddaraflokkur sem héldi því fram að hann væri á móti kerfinu en það væri fjarri sannleikanum. Flokkurinn kenndi innflytjendum um ástand efnahagsmála en ekki bankamönnum.