Flugstjóri Germanwings-farþegaflugvélarinnar sem var grandað í frönsku Ölpunum öskraði að flugmanninum að „opna fjárans dyrnar“ þegar hann reyndi að komast aftur inn í flugstjórnarklefann.
Flugmaðurinn, hinn 27 ára gamli Andreas Lubitz, læsti klefanum á meðan flugstjórinn brá sér á klósettið. Þá lækkaði hann flug vélarinnar vísvitandi og brotlenti henni í kjölfarið, svo allir þeir 150 sem voru um borð létust.
Flugstjórinn reyndi í örvæntingu að komast aftur inn í flugstjórnarklefann á þeim átta mínútum sem það tók Lubitz að granda vélinni, samkvæmt því sem kemur fram á flugrita vélarinnar.
Samkvæmt þýska blaðinu Bild í dag kemur fram að heyrst hafi í honum öskra: „Í guðanna bænum, opnaðu dyrnar!“ um leið og heyra mátti farþega öskra í bakgrunni.
Reyndi hann að brjóta hurðina upp með exi á meðan hann öskraði á Lubitz að „opna fjárans dyrnar“. Á meðan var Lubitz þögull og andardráttur hans eðlilegur.
Áður en flugstjórinn yfirgaf flugstjórnarklefann segir hann Lubitz að hann hafi ekki haft tíma til að fara á klósettið áður en þeir yfirgáfu frá Barcelona í átt að Düsseldorf.
Þýskir saksóknarar segja Lubitz hafa falið veikindi sín fyrir flugfélaginu, en læknar höfðu mælst til þess að hann færi í veikindaleyfi á þeim tíma sem slysið varð. Á föstudag fundust á heimili hans læknisvottorð sem búið var að rífa. Þá fannst á heimili hans fjöldi lyfja sem notuð eru til meðferðar á geðrænum veikindum.
Ekkert er talið benda til þess að Lubitz hafi átt við áfengis- eða fíkniefnavanda að stríða. Hann hafi þó verið undir miklu álagi og var mjög þunglyndur samkvæmt persónulegum bréfum sem fundust á heimili hans.
Lubitz leitaði tvisvar á sjúkrahús nýverið. Í febrúar leitaði hann álits læknis vegna sjúkdómsgreiningar. Síðari heimsóknin var hinn 10. mars.