Bandaríkjaforseti, Barack Obama, hefur fordæmt sálrænar meðferðir sem eru í boði í Bandaríkjunum sem ætlað er að „laga“ ungt fólk af samkynhneigð og þá sem eru transgender.
Obama gaf út þessa yfirlýsingu vegna bænarskjals á netinu þar sem óskað er eftir því að bannað verði að bjóða slíkar meðferðir. Yfir 120 þúsund manns hafa skrifað undir á þeim þremur mánuðum sem eru liðnir frá því bænarskjalið var sett á netið í kjölfar dauða Leelah Alcorn, 17 ára transgender stúlku sem framdi sjálfsvíg í desember.
„Dauði minn þarf að þýða eitthvað“
Alcorn fæddist sem drengur, en hafði upplifað sig sem stúlku frá fjögurra ára aldri. Hún lést þann 28. desember sl. þar sem hún gat ekki hugsað sér að lifa lengur í þeim fordómum sem hún fann fyrir frá fjölskyldu sinni.
Í bréfi sem ráðgjafi forsetans, Valerie Jarrett, ritar til þeirra sem standa að bænaskjalinu kemur fram að forsetaembættið deili áhyggjum þeirra um þau skelfilegu áhrif sem slíkar meðferðir geti haft á líf þeirra sem eru transgender, samkynhneigðir, tvíkynhneigðir og ungmenna sem eru öðruvísi.
Sem hluti af ákvörðun bandarískra yfirvalda um að vernda bandarísk ungmenni þá styður Bandaríkjastjórn að bann verði lagt á slík meðferðarúrræði fyrir ungmenni.
Slík ráðgjöf og bænir eru notaðar í meðferðum meðal ákveðinna hópa kristinna til þess að reyna að fá ungt fólk til þess að láta af samkynhneigð. „Við teljum að hægt sé að breyta. Fólk fer í slíka meðferð þar sem það getur breyst. Vegna þess að þetta virkar svo sannarlega,“ segir David Pickup, fjölskylduráðgjafi í Kaliforníu og Texas í samtali við New York Times.
En líkt og BBC bendir á hafa geðhjálparhópar og baráttusamtök samkynhneigðra sagt að það að senda ungmenni í slíka meðferð geti aukið líkurnar á þunglyndi þeirra og að þau fremji sjálfsvíg.
Slíkar meðferðir eru bannaðar í Kaliforníu og New Jersey en í öðrum íhaldssamari ríkjum, eins og Oklahoma, er verið að kanna hvort hægt sé að setja lög sem komi í veg fyrir að hægt verði að lögsækja þá sem bjóða upp á slíkar meðferðir.