„Ég býð mig fram sem forseta. Hinn almenni Bandaríkjamaður þarfnast málsvara og ég vil vera sá málsvari.“ Þetta segir á Twitter síðu Hillary Clinton, en hún er formlega búin að tilkynna framboð sitt til forsetaembættis í Bandaríkjunum árið 2016.
Leynt og ljóst hefur verið talað um framboðið undanfarin tvö ár, en nú er það orðið formlegt.
I'm running for president. Everyday Americans need a champion, and I want to be that champion. –H https://t.co/w8Hoe1pbtC
— Hillary Clinton (@HillaryClinton) April 12, 2015