Dómstóll í Taílandi dæmdi í dag andlega veika konu á sjötugsaldri í fangelsi fyrir að hafa móðgað konungsdæmið.
Konan, sem er er 65 ára að aldri, þarf að afplána eins árs fangelsisdóm fyrir að hafa hegðað sér á óviðeigandi hátt fyrir framan mynd af konungi landsins. Ekki er tilgreint nánar um hvað konan gerði en brotið á hún að hafa framið þann 13. júlí 2012.
Þá var hún dæmd í skilorðsbundið fangelsi vegna þess að hún er andlega veik en stjórnarskrárdómstóll Taílands hefur nú dæmt að hún skuli afplána dóminn í fangelsi.