Ráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins samþykktu í dag að grípa til aðgerða gegn smyglurum sem hjálpa flóttafólki að komast frá Norður-Afríku og til Evrópu.
Aðgerðirnar munu meðal annars fela í sér að safnað verður upplýsingum um smyglarana, hvar þeir staðsetja sig og í einhverjum tilfellum verða fleytur þeirra eyðilagðar.
Federica Mocherini, utanríkismálastjóri Evrópusambands, sagði eftir fund ráðherranna í dag að markmiðið væri alls ekki að eyðileggja fleytur smyglaranna, heldur það að koma í veg fyrir að þeir gætu grætt á því smygla flóttafólki yfir Miðjarðarhafið.
Hún sagði að gripið yrði til aðgerða strax á næstu mánuðum.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur áður lagt það til við ríki Evópusambandsins að þau taki við ákveðnum fjölda flóttamanna og þeim auðveldað að komast til Evrópu með löglegum leiðum í stað þess að þurfa að flýja með aðstoð smyglara.