Myrtur af leigumorðingja fyrir mistök

Maðurinn var skotinn til bana með haglabyssu.
Maðurinn var skotinn til bana með haglabyssu. AFP

Þrír hafa verið ákærðir vegna dauða manns sem var skotinn fyrir mistök. Maðurinn var skotinn af leigumorðingja en hann bar sama nafn og skotmark leigumorðingjans.

Mennirnir sem eru á sextugs- og fimmtugsaldri voru ákærðir fyrir morð, mannrán og samsæri um að fremja morð.

Árið 2006 var Daniel Ott skotinn til bana á heimili sínu af manni sem hafði brotist þangað inn. Ott var skotinn í höfuðið með haglabyssu.

Rannsóknaraðilar telja nú að Ott hafi verið fórnarlamb leigumorðingja, en rangt fórnarlamb. Lögreglustjóri í Geauga County, þar sem Ott bjó, greindi frá því að Joseph Rosebrook hafi ráðið mann til þess að myrða annan mann sem heitir Daniel Ott.

Ott hafði verið vitni gegn Rosebrook þegar hann var ákærður fyrir bílaþjófnað. Sá Ott hefur lifað af tvær morðtilraunir leigubmorðingja. Lögregla gat ekki veitt frekari upplýsingar um Ott en hann er undir vitnavernd.

Rosebrook var handtekinn í Flórída en honum var sleppt úr fangelsi í fyrra vegna bílaþjófnaðarins. Hann og bróðir hans, Carl, sem að sögn lögreglu greiddi fyrir morðið, ásamt leigumorðingjanum eru allir í haldi lögreglu skammt frá Cleveland.

Sky News segir frá þessu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert