Ferðamenn fórust í rútuslysi

Frá vettvangi í Portúgal.
Frá vettvangi í Portúgal. AFP

Þrír hollenskir ferðamenn létu lífið og 31 manns slasaðist alvarlega þegar rúta ók út af veginum í suðurhluta Portúgals í gærkvöldi.

33 ferðamenn voru í rútunni þegar bílstjórinni missti stjórn á henni með fyrrgreindum afleiðingum. Þá var rútan stödd á hraðbraut norðan af borginni Albufeira í Algarve, að sögn portúgalskra fjölmiðla.

Hinir slösuðu voru allir fluttir á sjúkrahús og er einn þeirra talinn vera í alvarlegu ástandi.

Ekki liggur enn fyrir hvað olli slysinu, að sögn lögreglunnar, eftir því sem fram kemur í frétt AFP.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert