Stjórnvöld í Bretlandi og Frakklandi hafa hvatt önnur ríki Evrópusambandsins til að hjálpa þeim við að takast á við flóttamannavandann í frönsku borginni Calais.
Theresa May, innanríkisráðherra Bretlands, og Bernard Cazeneuve, innanríkisráðherra Frakklands, segja í grein í Sunday Telegraph í dag að um alþjóðalega flóttamannakrísu sé að ræða. Þau biðla til ráðamanna í Evrópu að leggja sitt af mörkum.
Farandfólk hefur laumast um borð í flutningabíla í borginni og komist þannig til Bretlands.
Calais er við munna Ermarsundsganganna. Mörg þúsund farandmenn frá Mið-Austurlöndum og Afríku hafa hreiðrað um sig á svæðinu næst göngunum og valdið töluverðum truflunum á samgöngum á milli Bretlands og Frakklands
Eftirlit á svæðinu hefur verið hert, öryggismyndavélum hefur til að mynda verið fjölgað og girðingar hafa verið efldar.
Í byrjun júlí héldu um þrjú þúsund flóttamenn, flestir frá Eþíópíu, Erítreu, Súdan og Afganistan, til í Calais.