Leit er hafin af tveimur byssumönnum sem skutu lögregluþjón eftir að hafa brotist inn í innanríkisráðuneyti Frakklands í útjaðri Parísar í morgun.
Lögregluþjóninn kom aftan að mönnunum tveimur eftir að þeir höfðu brotist inn í bygginguna.
Annar mannanna tók byssu af lögregluþjóninum og skaut hann, að sögn talsmanns innanríkisráðuneytisins.
Liðsmenn frönsku sérsveitarinnar voru strax kallaðir á vettvang og leituðu þeir að mönnunum um alla bygginguna, án árangurs.
„Það var byssuskot. Lögregluþjóninn er smávægilega særður. Hann var fluttur á spítala,“ sagði talsmaðurinn.